Við viljum þakka frábærar móttökur á nýju vettlingunum okkar frá Guide .
Margir hafa fundið vettling við sitt hæfi og nú er Guide vettlinga línan okkar
Janúar er vettlinga mánuður hjá Ferrozink og við blásum til sóknar með handboltalandsliðinu því Guide er stærsti
styrktaraðili EM mótsins í handbolta að
Vörulýsing:
Hornstaurar: 80x80x4mm prófill með 6 eyrum.
Millistaurar: IPE 80 bitar, lengd 2m
Leiðarar: 1 1/2" vatnsrör.
Gönguhlið: breidd 1,2m.
Rekstarhlið: Tveir stuarar með festingum fyrir lausa slá, 2" rör.
Röratengi og röraendar.
Stálboltar og rær: Heitgalv.10x30mm.
Við hönnun á girðingunum var haft í leiðarljósi að þær ættu að vera einfaldar, fljótlegar í uppsetningu og traustar. Öll girðingin er boltuð saman þannig að hægt er að skipta um hluta hennar ef hún skemmist. IPE 80mm bitarnir eru með tveggja metra millibili og eru lokaðir að ofan til að koma í veg fyrir hvöss horn. Hornstaurar eru úr 80x80x4mm prófil og leiðarar úr 1 1/2" vatnsröri. Þar sem ætlast er til að að hægt sé að opna girðinguna eru sett 2" rör sem fest eru með splitti.
Yfirborðsmeðhöndlun:
Allt er gert til að ending girðingarinnar verði sem mest. Girðingin er öll úr stáli, staurar, rör, net og hlið. Þess vegna notum við bestu aðferð sem þekkist til að koma í veg fyrir ryðmyndun. Stálinu er dýpt í fljótandi zink og myndar zinkhúð sem endist í áratugi. Endingin er margföld á við mállningu og zinkhúðun og er ekki jafn viðkvæm. Þó að rispur eða smáskemmdir komi í húðina myndar zinkið efnasmaband við stálið og gerir það að verkum að ekki sest ryð í sárið. Rakinn kemst heldur ekki undir húðina og nær því ekki að sprengja vörnina frá sér.