Forsíða
- [Framleiðsluvörur]
- [Ljósastaurar]
- [Kónískir]
- [Þrepaðir]
- [Brotliðsstaurar]
- [Aðrir ljósastaurar]
- [Toppar á ljósastaura]
- [Ljósamöstur]
- [Vegrið]
- [Girðingar]
- [Hestagerði]
- [Gámabrú]
- [Ristarhlið]
- [Sveifluhliðsvængir]
- [Snúrustaurar]
- [Reiðhjólagrindur]
- [Sorpgrindur]
- [Skiltarör og festingar]
- [Leiðiskrossar]
- [Brunnlok]
- [Laskar]
- [Bryggjuefni]
- [Fánastangir]
- [Sérverkefni]
- [Stál]
- [Ál]
- [Plastvörur]
- [Verslun]
- [Fákasport]
- [Zinkhúðun]
- [Smiðjan]
- [Flutningur]
- [Hér erum við]
- [Sölu og afhendingarskilmálar]
Ferro fréttir!
12.5.2010 - Nýjir bæklingar á pdf formi!
Við höfum gefið út nýja bæklinga yfir stál, ál, plast, ristarefni og zinkhúðun. Hér fyrir neðan má nálgast þá á pdf formi.
24.3.2010 - ferrozink.is
Heimasíðan hefur fengið slóðina www.ferrozink.is í stað ferro.is.
Einnig hefur netföngum starfsmanna verið breytt í "@ferrozink.is" í stað "ferro.is" og "sandblastur.is".
22.2.2010 - Kynning á TIG suðu á vegum Málmsuðufélagsins og Iðnskólans í Hafnarfirði!.
Verður haldið föstudaginn 26. febrúar kl 16:00 í Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Um er að ræða kynninga á sérstakri aðferð við TIG suðu "walk the
|
Allt frá árinu 1965 hefur smíði ljósastaura verið einn stærsti hluti framleiðslu okkar. Meirihluti framleiðslunnar er seldur ríki og sveitafélögum til notkunar vð lýsingu á gatnakerfi landsmanna, en töluverður fjöldi fer til lýsinga á bílastæðum, göngustígum, vinnusvæðum og víðar.
Ljósastaurarnir eru af ýmsum lengdum og gerðum en sverleiki topps er staðlaður til að passa við ljósker frá ýmsum aðilum. Ljósastaurarnir eru ýmist þrepaðir eða keilulaga en einnig framleiðum við ljósamöstur (bryggjumöstur), ljosapolla og sérsmíðum eftir óskum og þörfum viðskiptavina. Meirihluti ljósastaura á landinu eru frá okkur. Sem dæmi má nefna Reykjanesbrautina, aðreinar Hvalfjarðarganga, athafnasvæði Íslenska Álfélagsins og meirihluti gatnakerfis Akureyrarbæjar. Algengast var að ljósastaurar væru þrepaðir þ.e. rör soðin saman, sver neðst og síðan grennri ofan á. Fjöldi röra sem sem eru soðin saman fer eftir hæð staursins. Nú eru keilulaga staurar orðnir algengari. Fjöldaframleiddir staurar eru eru til í lengdum frá fjórum meturm í tólf metra (hér er átt við þá hæð sem stendur upp úr jörðu). Aðrar stærðir eru sérsmíðaðar. Styrkur stauranna er rekinaður út hjá verkfræðistofu VST hf. Notað er reiknirforrit VST hf samkvæmt breskum staðli; BS 5649. Miðað er við að ljósastaurarnir og lampabúnaður þoli íslenskt verðurfar og aðstæður. Sveiflutími, álagsstuðull, efnisstuðull og útbeygja eru meðal atriða sem reiknuð eru. Til að ending ljósastauranna sé sem best er notuð besta aðferð sem þekkist til að koma í veg fyrir ryðmyndun. Staurunum er dýpt í fljótandi zink þannig að allt yfirborð þeirra húðast og ekki er hætta á tæringu innanfrá. Zinkið myndar húð sem endist í áratugi, endingin er margföld á við málningu og zinkhúðin er ekki eins viðkvæm. Þó að komi rispur eða smá skemmdir í húðina þá myndar zinkð efnasambönd við stálið sem gerir það að verkum að ekki sest ryð í sárið. Raki kemst heldur ekki undir húðina og nær því ekki að sprengja vörnina frá. |
|
|
|
|
|
|
|
|
Zinkhúðun er einhver öflugasta ryðvörn sem til er. Á Akureyri erum við með zinkkar sem er 9m á lengd, 0,9m á breidd og 1,8m á dýpt.
|
|
|
Minnum á að bíllinn okkar fer frá Hafnarfirði alla þriðjudaga og fimmtudaga.
|
|





