Sölu og afhendingarskilmálar.
Í öllum viðskiptum eru eingöngu í gildi eftirfarandi skilmálar, nema að um annað sé samið og staðfest skriflega af seljanda. Innkaupaskilmálar kaupanda eru ekki bindandi fyrir seljanda. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði í verðlista án fyrirvara. Allt verð í tilboðum og pantanastaðfestingum miðast við að tilboðið sé samþykkt strax, að varan sé til á lager á Íslandi og að varan sé afhent strax. Sé varan ekki til á lager á Íslandi eða varan ekki afhent strax, þá áskilur seljandi sér rétt til að breyta endanlegu verði á afhendingardeginum í samræmi við breytingar á innkaupsverði, gengisskráningu, flutnings- og tollkostnaði, efniskostnaði, launum og öðrum kostnaði. Auk uppgefins verðs eru reiknuð gjöld og skattar eftir gildandi reglum og lögum. Þess ber að geta að verðið er án umbúða. Umbúðir eru skuldfærðar við pöntun og fæst ekki skilað.
Tilboð og pantanastaðfestingar eru ávallt með fyrirvara um millisölu á vörunni. Í tilboðum og pantanastaðfestingum á vörum, sem til eru á lager á Íslandi, er afgreiðslu-, pökkunar-, og senditími áætlaður en ekki bindandi. Boðinn afhendingartími á vöru, sem er sérpöntun eða ekki til á lager seljanda, er reiknaður frá þeim degi að telja, þegar lokapöntun hefur verið endanlega skráð hjá birgðasala seljanda (eða framleiðanda). Seinkun á afhendingu getur ekki undir neinum kringumstæðum veitt kaupanda rétt til afpöntunar, til skaðabótagreiðslu af neinu tagi né þess að gjaldfallinni greiðslu sé haldið eftir. Seljandi áskilur sér rétt til að stöðva afhendingu séu greiðsluskilmálar ekki haldnir. Verði tafir á afhendingu af völdum verkfalls, verkbanns, neyðarástands, rekstrartruflana eða truflana á hefðbundnu flutningakerfi í afhendingarferlinu, framlengist afhendingartími í samræmi við tafirnar. Seljandi áskilur sér rétt til að fella pöntunina niður algerlega eða að hluta í slíkum tilvikum. Seljanda ber í slíkum tilfellum ekki skylda til að gera ráðstafanir til að útvega vöruna frá öðrum.
Við pöntun frá birgðasala seljanda (eða framleiðanda) er verð og magn reiknað eftir viktun og mælingu birgðasalans og með 10% fráviki í hvora átt frá tilgreindu magni telst pöntunin vera endanlega afgreidd. Seljandi hvetur kaupanda til að framkvæma ávallt nákvæma sjónskoðun og mælingu á málum og málfrávikum á vörunni, áður en smíði eða vinnsla/notkun á vörunni hefst.
Efnisvottorð eru fyrirliggjandi fyrir flestar vörur seljanda. Kaupandi er hvattur til að taka efnisvottorð með vörunni. Seljandi greiðir ekki skaðabætur vegna afleiðinga af framleiðslugöllum, skemmdum eða mistaka við afhendingu.
Afpöntun/afturköllun á sérpöntun er aðeins talin gild að fengnu samþykki birgðasala seljanda (eða framleiðenda), eða ef skrifleg staðfesting er fyrirliggjandi frá seljanda. Vörur, sem ekki eru lagerfærðar á lager seljanda í Hafnarfirði (og eru í verðlista seljanda ) teljast sérpantaðar og getur kaupandi ekki skilað þeirri vöru, nema um ranglega afgreidda vöru sé að ræða.
Sé greiðsla ekki innt af hendi innan greiðslufrests þess sem tilgreindur er í vörureikningi, reiknast hæstu leyfilegu dráttavextir samkvæmt vaxtatöflu Seðlabanka Íslands. Kvartanir þurfa að hafa borist innan 8 daga frá móttöku vörunnar. Skil á vöru geta einungis átt sér stað að fengnu samþykki seljanda og í síðasta lagi 8 dögum eftir afhendingu. Við tekjufærslu (skilum) dragast 20% frá til að mæta kostnaði, að lámarki kr. 2,500,-. Frádráttur þessi á ekki við um ranglega afgreiddar vörur. Ekki er hægt að skila vörum sem eru sérstaklega sagaðar eða tilsniðnar að óskum kaupandans.
Verð miðast við afhendingu við lagerdyr í Hafnarfirði, nema annað sé tekið fram. Sé þörf á auka mannafla og tækjum við affermingu hjá móttakanda, er það á kostnað og ábyrgð kaupanda að öðru leyti gilda almennir söluskilmálar birgðasala seljanda (eða framleiðenda), sem viðskiptamenn geta kynnt sér á skrifstofu seljanda.
Ferro Zink hf, janúar 2003.